14.8.11

Þessar myndir hér á undan fóru í rugl. En leiðinlegt, ég nenni ekki að fiffa það.

Þessi helgi fór öfganna á milli í gleði og gamani og leiðindum. Amy Winehouse var tekin með trompi.

Það er aðeins of ljúft að vera ein heima. Ég sit hálfnakin og horfi á sjónvarpið núna, bara af því að það má. Mig langar samt eiginlega að sitja inni í kirkju og hlusta á smá orgelspil. Það væri gott. Ég væri samt líka til í að hlusta á síðasta lag fyrir fréttir á Rás 1. Það er alltaf eitthvað gott.
Almennt væri ég til í að vera lítið barn akkúrat bara í dag. ÞAÐ væri gott. Og það væri sumardagurinn fyrsti.
Mig langar skrýtna hluti.

Ég þyrfti að fara og semja ljóð.