Akkúrat þessa stundina er ég mjög hamingjusöm, hlustandi á Funeral með Arcade Fire sem ég hef ekki gert í langan tíma, sitjandi inni í herberginu mínu sem ég kann svo vel við, með nörda-ljósakrónunni úr móðurborðum, skrifborði með allskonar drasli á, myndarömmum og minningum héðan og þaðan, mjög margar frá Þýskalandinu góða og allskonar bækur. Nýkomin úr sveitinni þar sem ég og Halla hjálpuðum kæru vinum okkar Bergþóru hótelstýru og Sigfúsi að ganga frá Stórutjörnum. Með harðsperrur í tusku-vöðvanum, ógeð í hárinu eftir þrif í hornum, á fjórum fótum, inni í skítuga eldhúsinu og búin að brjóta saman tugi laka og sængurvera get ég ekki verið annað en glöð.
Ísland skartaði sínu fegursta á leiðinni heim svo við Halla förum inn í haustið og veturinn með fallega iðjagræna hugmynd um landið okkar fína.
Við áttum líka svo skemmtilega ferð þangað, þegar við húkkuðum okkur far með rútu fulla af 13 og 14 ára strákum sem spila fótbolta með 4.flokki kk. hjá Fjarðarbyggð. Þeir voru mjög hressir, hlusta á dubstep, reyndu að koma okkur úr jafnvægi með dóna-bröndurum (við tvær, augljóslega, ekki réttu konurnar í slíkt) og við tókum smá feminísk innslög á þá. Mjög skemmtileg rútuferð í alla staði.
Elskaði Röskvu enn meira eftir þessa ferð. Frábærir vinir, frábært fólk, frábærar (þungar híhí) samræður.
Síðasta helgi var líka rosalega skemmtileg. Óvart smá kokkteilar á 101 Hótel á föstudaginn og bjór þrátt fyrir 10 km. í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardagsmorgni. Það kom þó ekki að mikilli sök, enda formið svona misgott eftir sumarið. Föstudagskvöldið fer í einhverskonar topp á skemmtilegum kvöldum samt.
Menningarnótt var skemmtileg með vinkonunum góðu.
Núna taka nokkri dagar við af sumarsturlun, síðustu droparnir nýttir áður en lögfræði og háskólalíf heltekur líf mitt. Æj hvað ég kann samt vel við það og það verður gott að detta í rútínuna góðu, eins og alltaf.
Vinkonugrín á laugardaginn sem verður örugglega snillasnilld - líka svo ofboðslega gaman að mæta bara án þess að vera búin að plana eins og allt annað sem ég geri.
Engar áhyggjur, bara gaman.
24.8.11
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á miðvikudagur, ágúst 24, 2011
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|