7.9.11

Í staðinn fyrir að stressa mig og pína til þess að læra ætla ég bara að hlusta á nokkur góð lög, brosa út að eyrum, fagna útgáfu ótrúlega flotta haustblaðs Röskvu og njóta þess að vera háskólastúdína eins og enginn sé morgundagurinn.
Það er alltaf hægt að vinna lærdómstap upp um helgina, og það mun ég sko gera. Þetta verður árið mitt.

Það er líka búið að vera svo hlýtt og gott veður, afskaplega góð og kærkomin framlenging á sumrinu.
Sumrinu sem endaði svo vel með miklu djammi, Vinkonuríni 2011 sem var stórkostlegt (ég þyrfti að blogga sér blogg um það, þegar ég gef mér betri tíma) og almennri gleði.

Ég elska að vera stúdent. Ég vildi bara að mér þætti alveg jafn gaman að læra. Og lesa lög, en það er allt annar handleggur...

Haustblaðið fyrir þá áhugasömu. Forsíðan er óóótrúlega flott.

Í kvöld og á morgun verður svo hægt að finna mig á Glaumbar þar sem ég ætla að Röskvast enn meir með ódýran bjór við hönd. Í kvöld erum við með litla kynningu á starfinu okkar og á morgun er beisikk bjórkvöld. Beisikk bjórkvöld = mjög gaman.

Ég segi það aftur. Ég elska að vera stúdent.
Háskólinn er minn staður. Hér á ég heima. Hér hef ég alltaf viljað vera.

Takk og bless,
hamingjusama Brynhildur.