Ég hef ekki staðið mig í blogginu undanfarið. ég vil halda þessum miðli á lífi. Þetta verður þá bara kannski svolítið langt og gott í kvöld.
Ég fór til Bandaríkjanna í lok október. Við vorum 7 laganemar sem héldum vestur um haf. Samstarf lagadeildar HÍ og Ohio Northern University, ONU sem staðið hefur yfir í 52 ár.
Við gistum fyrstu nóttina okkar í Columbus, höfuðborg Ohio. Það var sunnudagskvöld þegar við komum. Rétt hjá hótelinu okkar var mikið partí, stór staður þar sem fólk gerði sér glaðan sunnudag. Meira að segja svo glaðan að tvær léttklæddar stúlkur unnu við það að hella skotum upp í þá sem fyrir það borguðu. Við vorum temmilega þreytt eftir langt ferðalag og fórum að sofa, þótt strákarnir hafi reyndar tekið allvel á því í tekíla og fleiru góðu.
Áður en við héldum í hæstarétt Ohio með gestgjöfum vikunnar tókum við smá verslunarleiðangur. Hæstirétturinn var ágætur. Við fórum svo og sáum einhverja aðra ríkisbyggingu í Columbus áður en við fórum á veitingastað.
Merkilegast þegar ég sá gestgjafana: strákarnir voru flestir í svo stórum fötum að ég hefði getað komist í þau með þeim.
Stórborgarskoðun var lokið og við tók smábærinn Ada í Ohio. Þar er staðsettur ONU og verksmiðja rétt fyrir utan sem handsaumar Wilson boltana sem notaðir eru í amerískum fótbolta.
Næstu dagar voru rólyndisdagar þar sem við drukkum mikið vín, kíktum í ameríska lögfræðitíma og versluðum okkur Halloween búninga.
Halloween partíin þarna voru ekkert grín, þvílíkur metnaður! Íbúðirnar voru á hvolfi fyrir þetta.
Áhugaverðast fannst mér að fara í kvennafangelsið sem við heimsóttum. Aðbúnaðurinn var nokkuð betri en ég átti von á, en samt er þetta kannski ekki beint staður sem ég myndi velja mér að búa á...
Við fórum líka í Police Ride-Along í Lima (þó ekki höfuðborg Perú). Mikið var talað um háa glæpatíðni í borginni, það var allt með nokkuð kyrrum kjörum þetta kvöld enda rigning úti. Mér sýndist lögreglan vera að leita að vandræðum í hverju horni, keyra og athuga grunnsamlega bíla, sem voru samt ekki grunnsamlegri en það að vera með bilað ljós yfir númeraplötunni.
Merkilegast við að vera í Ada fannst mér hvað a) ég myndi aldrei vilja búa þarna b) þau uppfylltu staðalímyndir af Könum vel, gallharðir Repúblikanar í Ohio sem eiga byssur, sumir hverjir m.a.s. með þær hlaðnar undir koddanum.
Í Washington D.C. fórum við svo í hæstarétt Bandaríkjanna, hittum dómarann Scalia sem var ágætur kall. Boð í sendiráðið sem var stórskemmtilegt. Verslunarleiðangur og skoðunarferðir.
Þetta var mjög beisikk útlandaferð, mjög skemmtileg og fræðandi. Skemmtilegt fólk sem við kynntumst og hittum eitthvað af því í vor hér á Íslandi.
Eftir að ég kom heim hef ég ekki djammað. Það þýðir að ég hef ekki djammað í mjög margar vikur. Því er nú verr og miður.
Meistaramánuður varð ekki mikill hjá mér, ég kom heim og þá var hann farinn að styttast í annan endann og ég nokkuð mikil meistari.
Þetta er u.þ.b. leiðinlegasta blogg sem ég hef skrifað. Ég er greinilega dottin úr æfingu.
Leiðindin helgast kannski af því að prófatíð er mætt í öllu sínu veldi (er ég ekki ALLTAF í prófum?!) og ég er svo stressuð fyrir kröfurétt að ég tárast. Sjálfboða-snillingaríkröfurétti-liðar óskast.
Það er nefnilega ljós að ég mun ekki falla á þessari önn. Kemur ekki til greina.
Ókei bæ. Lofa að vera ótrúlega skemmtileg 16.desember.
27.11.11
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á sunnudagur, nóvember 27, 2011
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|