Hið margumtalaða og lofsamaða jólafrí er hafið. Það hefur verið ljúfara en orð fá lýst. Prófatíð var löng og ströng en andleg heilsa mín hlaut ekki varanlegan skaða af sem er fyrir mestu. Þá er bara að bíða spennt eftir dómnum.
Ég gerði lítið annað en að djamma og sofa um helgina og var það vel. Ég var náttúrlega ekki búin að fara á djammið í miðborg Reykjavíkur í u.þ.b. 6 vikur. Það brást mér ekki. Unnur varð stúdent og var því fagnað vel sem og afmælis-stúentsveislu Álfhildar&Péturs. Svona eiga jólin að vera, umvafin gömlum góðum vinum.
Vandræðalegt en satt er ég bara ein að tjilla heima hjá mér núna, svo þreytt kl. 22 að ég teygi mig ekki einu sinni í símann. En þannig eiga jólin og jólafríið líka að vera.
Við móðir mín höfum hafið hið árlega Grey´s maraþon. Í gær horfðum við á sjö þætti úr seríunni sem við horfðum á fyrir ári síðan. Við fórum að sofa kl. 4. Svona eiga jólin að vera.
Ég er að leggja drög að annál ég ætla að lofa flugeldasýningu.
(af hverju hefur mér farið svona aftur í blogginu? ég verð að fara að taka mér tak!)
19.12.11
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á mánudagur, desember 19, 2011
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|