Ársuppgjör Glamúrgellunnar 2011!
Árið hófst á i8 með Dóru og Gyðu Lóu í þynnku í rúminu hennar Dóru þar sem við ákváðum hvernig nýja árið skyldi vera. Við ákváðum að það ætti að vera vínkonuár 2011 og plönuðum sitthvað fleira leynilegt.
Kosningabarátta átti hug minn og hjarta í janúarmánuði. Það er svo skemmtilegur tími en um leið svo erfiður. Fáránlega mikil málefnavinna í Þingborg, Svitaballssnilld og allskonar meira gaman, og annað meira leiðinlegt. Eins og að tapa.
Ákvað að standa mig eins vel og ég gæti. Held ég hafi gert það, formaður hagsmunanefndar og stúdentaráðsliði. 
Ó, elsku Þingborg!
Ég varð tuttuguogtveggja ára.
Lék mikið með Þorsteini.
Kveðjustund með Dóru á i8. Bæði heimilið og konan kvödd. Tárin í augunum á gólfinu með Chicago - If you leave me now.
Árshátíð Orators. Góður dagur með veglegasta bröns síðari tíma. Skrýtin árshátíð.
Kvartaði yfir illa skornum beyglum við Mylluna. Fékk allskonar gúmmelaði. Nú hefur fjölskyldan eignast stærri rist svo vandamálið verður vonandi úr sögunni.
Árshátíð Röskvu var einhver ótrúlegasti viðburður ársins. Þvílík stemming! Þvílík gleði! Þvílíkt rugl! Endaði í karokí og almennum látum, nokkuð snemma.
Bomban, að sjálfsögðu, valin kynþokki Röskvu 2010 - 2011. Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel. Það gerast stórkostlegir hlutir þegar þetta eðal fólk kemur saman.
1.apríl var örlagadagur þegar við stelpurnar drukkum bjór á Háskólatorgi og fórum svo í Bjarmaland í kjúklingavængi og meira. Jökull nokkur Sólberg kom í heimsókn. Ástin kviknaði á ný milli hans og ungfrú Gyðu Lóu. Bjarmalandsástin, eins og ég vil kalla hana.
Flottasta parið elskar Bratwurst.
Litlu hlutirnir í lífinu eru svo góðir. Kaffipásur á Háskólatorgi eru eitthvað það besta. Kaffibolli og hafragrautur á föstudagsmorgnum þegar ekki gafst tími til að borða morgunmat heima vegna ástands næturinnar.
Hjalti Jón að drekka kaffi og borða kókoskúlu. Og tvö skyr.
Athugasemdir um nestið mitt fengu að fljúga sem fyrri ár. Já, pabbi smyr fyrir einkadótturina, og já ég borða mikið. Þið vitið að þetta er bara öfund í ykkur, krakkar. Einn daginn flyt ég að heiman, einn daginn.
Ég varð meiri feministi árið 2011.
Í maí kláraði ég próf. Las Minnisbók Sigurðar Pálssonar.
Féll í prófi og bugaðist nánast. En kláraði það svo og enginn skaði skeður, nema kannski lögfræðileiðinn varð meiri. Ojæja.
Fór til Líbanon, sem stuttu stoppi í Lundúnum hjá Eygló. Líbanon var gaman að heimsækja. Mig langar að sjá heiminn allan. Ekkert eitt stóð uppúr þeirri ferð, það er bara svo magnað að sjá eitthvað allt öðruvísi en maður hefur áður kynnst. Og það var gaman að tana uppi á hótelþakinu.
Sumarið kom. Sól og sumar. Partí. Pósturinn. Hann hefur aldrei verið ljúfari en í sumar, vinnu lauk fyrir hádegi alla daga.
Ég fékk mér ifón. Feis-aktífítet tekið upp á nýt level.
Fór a Bestu útihátíðina með Nei hópnum gegn nauðgunum. Það var mjög skemmtilegt og allskonar ólíklegasta fólk þar samankomið. Og Quarashi spiluðu. Helloooo.
Fór á Lunga, með stoppi á Akureyri. Ef það er spáð rigningu á næsta ári, þá fer ég ekki! Nei! Kemur ekki til greina. Það var samt mjög gaman, það er alltaf gaman að vera í vínkvennahópi, svoleiðis er það nú bara. Ég sendi líka skrýtnustu sms fyrr og síðar þessa helgi.
Garðpartí, strandhandboltamót, þessir föstu liðir í tilverunni. Garðpartíið var nokkuð fámennara en undanfarin ár, en gott engu að síður. Fámennt en góðmennt.
Flatey um verslunarmannahelgina. Ég var undarleg í þeirri ferð, en hún var góð. Nýtt fólk í lífið.
Að aflokinni sjóferð.
Það var ógeðslega gaman á Frikka Dórs tónleikum í ágúst. Áslaug var heldur betur í stuði þar, nýkomin heim frá Noregi með sand af seðlum og Sommersby og Fullnæging á línuna. Eða svona næstum því.
Guðrún Sóley stórvinkona mín hélt Amy Winehouse þemapartí. Ég tók þemað alla leið. Fyir utan kókið. Það er þá sennilegast bara að taka það hálfa leið.
Einhver besta minning sumarsins er frá föstudagskvöldinu fyrir menningarnótt, þegar það hófst á kokkteilum á 101 (Ásrún lánaði bleikan varalit) og endaði hlaupandi heim úr veislu sem mér var ekki boðið í (en mátti samt alveg vera í) til þess að ná nægum svefni áður en maraþonið hæfist. Eða 10 km. Það gekk svo vonum framar, þrátt fyrir lítil hlaup um sumarið. Vá hvað þetta var gott.
Vínkonugrín 2011 var stórskemmtilegt. Goddur spjallaði við okkur um ástina í ljúffengum bröns, magadans, skálað fyrir lífinu og svo margt fleira gott. Stórkostlegar konur, það er það sem þarf til að gera góðan dag.
Stórutjarnir buðu mig og Höllu velkomnar í smá vinnu. Eitthvað það besta og mikilvægasta sem ég þurfti akkúrat þá. Sigfús og Bergþóra yndisleg og skemmtileg. Og nóg af víni sem þurfti að klára. Þurfti.
Þessi ferð lét mig elska Röskvu ennþá meira, það er svo gaman að kynnast frábæru fólki og fá allskonar tækifæri með þeim.
Hversdagslífið á ný á HT. Ógeðslega mikið að gera í skóla og Stúdentaráði.
Í september gerðist ég listamaður. Opnaði sýninguna Kettirnir í Norðurmýrinni. Það var ótrúlega gaman. Ég ræddi list nokkuð í sumar, og hvenær maður væri listamaður. Ein ungfrú vill meina að það sé þegar einhver viðurkennir þig sem listamann og þegar maður selur list - ég hlýt þá að teljast listamaður núna og maður glatar þeim stimpli ekki svo glatt!
http://www.visir.is/med-ofnaemi-fyrir-myndefninu/article/2011709229951
Ohio og D.C. með laganemum. Það er aldeilis gott að fara svona til útlanda á haustin, gerir önnina betri og sparkar í rassinn á manni að læra. Ameríka bauð upp á allt sem hún hefur að bjóða. Halloween partí meðtalin. Þvílíkur metnaður. Og ómægod hvað var gaman að skjóta úr byssu.
Góður hópur!
Við heimkomu hófst lærdómur sem var langur og strangur. Búin að ná tveimur af þremur prófum, bíð spennt eftir síðustu einkunninni.
Jólafríið er búið að vera ljúft og gott, ég er í rauninni búin að gera nákvæmlega ekki neitt.
Sko þetta ár er búið að vera gott og viðburðaríkt. Ég fylltist þó svolítið miklum leiða í faginu og hlakka til að skipta um umhverfi. Ég vona að ári 2012 beri margt gott í skauti sér. Það hlýtur að vera. Ég veit ekki hvernig kona ég vil vera ("ég veit ekki einu sinni hvaða konu ég ber að geyma") - kannski bara góð kona.
Ég ætla að skrifa BA ritgerð á næsta ári og fullklára Menn&vín. Vonandi.
Uppáhaldsmynd ársins:
Uppáhaldslag ársins:
Ef ég væri lag, væri ég It´s Real með Real Estate.
Eins og aðrir trylltist ég yfir soundtrackinu úr Drive á síðustu mánuðum ársins.
Hlustaði mjög mikið á Bon Iver.
Og Try to Sleep með Low. Mögulega á repeat.
Ég er ekki svona tónlistargúrú. Stundum finnst mér bara miklu betra að vera í þögninni. Ég hlustaði á einhver podcöst þegar ég var að bera út. Í gær var eitthvað lag sem ég hugsaði „vá auðvitað er þetta uppáhaldslagið mitt“ Ég er búin að gleyma því í dag.
Ég finn ekkert meira uppáhalds.
Fínufínu systkinin. Þessir menn gleðja mig.
Mikilvægast er að hafa gott fólk í kringum sig.
Gleðilegt nýtt ár, elsku vinir og dyggir aðdáendur Glamúrgellunnar. Hafið það sem allra best.
29.12.11
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á fimmtudagur, desember 29, 2011
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|