Mig langar í tívolí. Ég held að mér þætti það gaman í fyrsta sinn núna.
Svo langar mig að yrkja ljóð. Læra förðun (ég veit, það er ógeðslega fyndið.) Fara í Húsmæðraskólann. Skrifa Menn&vín í alvöru. Ég hófst handa af fullum krafti í gær, það er erfitt.
Hmm, hvað langar mig meira? (ég er að reyna að eignast allskonar drauma) Ferðast! Læra þýsku mjög vel. Svo komst ég að því í Líbanon að franska er eiginlega tungumálið sem maður á að læra, hún er töluð svo víða. Ég væri til í að kunna þýsku, frönsku og spænsku. Kein problem.
Vera mjög fróð og klár. Ég er að reyna að vinna í því í vinnunni á hverjum degi núna, hlusta á fræðandi podcöst um allskonar hluti. Ég er búin að vera að hlusta á þætti sem heita Þær höfðu áhrif og er um konur sem hafa haft áhrif á nærsamfélag sitt og heiminn. Þetta er mjög fræðandi og skemmtilegt, og veitir manni mikinn innblástur. Ég er búin að hlusta á þætti um m.a. Fridu Kahlo, Margaret Tatcher, Isadora Duncan, Indira Gandhi og margar fleiri. Mjög áhugavert!
Svo langar mig líka til að vita hvað ég á að gera við þetta nám mitt. Það er seinni tíma vandamál.
Stundum langar mig líka til að stoppa tímann - það væri ekki verra að hafa úrið hans Bernharðs við höndina þegar það er gaman eða þegar mann langar að geyma góða stund aðeins lengur. Ég væri til í að safna þeim tíma saman þar sem ég hef nóg af honum og geta deilt honum niður þegar mig vantar hann. Vá hvað ég hef oft hugsað um það.
Hélt garðpartíið góða á föstudagin, nokkuð fámennt en afskaplega góðmennt. Lítil, einlæg ræða eins og vanalega.
Edrú á laugardaginn, í fyrsta sinn síðan ég veit ekki hvenær. Það var mjög fínt, enda búin að vera nokkuð annasöm drykkjuvika þegar ég vann óvænt miða á Cut Copy á miðvikudaginn í síðustu viku (það var alveg fínt, ekkert stórkostlegt. Hefði kannski þurft að þekkja þá betur) og svo Stúdentaráðsliðar sem fengu sér bjór saman eftir góðan fund á fimmtudagskvöldið. Ég endaði laugardagskvöldið á góðum stað. Strandhandboltamót fyrr um daginn sem var spilað í full miklu roki, en alltaf gaman.
Ætla í Flatey núna um helgina Allir skemmtilegir velkomnir með.
Langar að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld líka. Fer í það núna.
Dóra er að koma heim, það er ótrúlega gaaaman!
Lífið er gott, vantar bara að sólin láti sjá sig meira.
24.7.11
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á sunnudagur, júlí 24, 2011
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|