Ég hef aldrei verið jafn upptekin á ævinni, og er ég þó allajafna upptekin kona. Það er heldur betur gaman. Hér er öppdeit af lífi ungu konunnar í borginni litlu:
Síðasta helgi hófst á VOX með indælli Lindu. Við borðuðum svo ógeðslega mikið af góðum mat. Hún rændi mér svo í Hafnarfjörð. Borðuðum á Shalimar (algjör lúxus-matar-dagur). Fórum í stelpupartí til Maríu Rutar þar sem við dönsuðum frá okkur lífið. Stelpan fór á Októberfest í Dirndlinu, fulllítið af mönnum sem reyndu við mig fyrir minn smekk, í þessum klæðum!
Erfiður laugardagur sem varð þó mun betri þegar vinir mínir Jökull&Gyða Lóa buðu mér í ljúffengan, næstumþvíjóla mat. Við fórum svo í afmæli Hlöðvers&Nadiu þar sem ég dansaði aftur frá mér allt vit. Kanill. Skrítin mission. Heim.
Á fimmtudaginn opna ég mína fyrstu (og mögulega einu, sjáum til) listasýningu. Kettirnir í Norðurmýrinni, Kaffistofan, Hverfsgötu 42 kl. 19. Frumsamið ljóð flutt kl. 20:00. Ég er u.þ.b. að bilast úr spennu og hef borðað minna alla vikuna og farið oftar á klósettið.
Svo fer ég í allsherjarreisu til fæðingarlands míns í lok október - Ohio, Washington og New York bíða mín með opna arma og mikla gleði og engan lærdóm.
Ég þarf að læra u.þ.b. öll virk kvöld í viku ef ég ætla að ná þessum prófum.
Það hinsvegar, er seinni tíma vandamál. (þessi setning var mynduð eins og höfundur að lögfræðibók myndi skrifa hana)
Ég ætlaði að vera mjög dugleg að skrifa í Menn&vín. Ég verð að sjá til með það, kannski ég geti lokað mig af svona, tjah, um jólin og skrifað eins og mér sé borgað fyrir það...
Þetta er mitt haust. Mitt ár. Engin Melancholia.
Sú mynd voru vonbrigði, en Drive með verðandi eiginmanni mínum Ryan Gosling var frábær. Ég uppgötvaði hvað mér finnst í raun gaman í bíó þegar ég fór tvo daga í röð. Gaman svona þegar Riff hefst, en það byrjar einmitt á fimmtudaginn og miðað við þær myndir sem mig langar að sjá mun ég búa í bíó.
Minna öppdeit, meiri hugur næst. Hugurinn er bara á fullu allan daginn, alltaf, að hugsa um lögfræði, stúdentapólitík, list og vini. Ég nenni ekki að blogga um stúdentapólitík, það væri hræðilegt blogg.
Þetta lag er á repeat.
college feat. electric youth - a real hero
20.9.11
þetta skrifaði glamurgella.blogspot.com á þriðjudagur, september 20, 2011
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|