21.4.12

Besta vinkona mín og myndlistarkonan Dóra Hrund er í dag að frumsýna útskriftarverkið sitt, skýjavél, á útskriftarsýningu LHÍ.
Dóra er ótrúleg kona. Hún er stelpan sem getur allt. Einu sinni ákvað hún að vera skiptinemi í Búkarest í Rúmeníu. Hún er alltaf svo töff. Og hún hefur átt svo falleg heimili. Og hún er svo ótrúlega skemmtileg, hugmyndarík og flott. Og mér þykir svo óendanlega vænt um hana og allt það sem við gerum saman. Hún er búin með burtfararpróf í píanóleik, dansaði sig í gegnum menntaskóla, stundaði loftfimleika, gerir 70 armbeygjur suma daga og drekkur bjór. Svo er hún líka með meðmæli frá rithöfundi í farteskinu.

Ég er ótrúlega spennt að sjá útkomuna og spennt að sjá hana eins og gimstein í nýjum kjól. Það mætti mögulega segja að ég væri að rifna úr stolti.

Hér má sjá viðtal við hana á Stöð 2.

Hérna er svo ein rosa fín mynd af okkur vínkonum með Rakel Sif á milli okkar.


Áfram Dóra!