Ég hef átt einn undarlegan eftirmiðdag þennan fyrsta sumardag.
Það byrjaði á því að við Rakel sátum eins og illa gerðir hlutir að bíða eftir Ásdísi á framboðsskrifstofu Þóru Arnórsdóttur. Við höfðum þó mætt Ásdísi aðeins fyrir utan á meðan Ég er kominn heim með Óðni Valdimarssyni hljómaði í útvarpinu. Það var falleg stund. Við brunuðum svo í okkar gamla, kæra skóla Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem Hamrahlíðarkórarnir sungu sumarið inn. Fyrir utan MH blöstu við okkur hestar.
Tónleikarnir voru allir hinir undarlegustu, en bráðskemmtilegir. Flutt var ljóð á japönsku, bössum snúið, þrammað fram og aftur, barn grét hástöfum, ein stelpa söng svo fallega að ég táraðist og tónleikunum lauk á mínu uppáhalds sumarlagi, Ó blessuð vertu sumarsól. Þá voru teknar Muellers æfingar.
Við kíktum á okkar gömlu heimahaga, en þar var allt eins og það átti að vera og Rakel fékk sér lúr í Norðurkjallara, rétt eins og forðum daga. Það var m.a.s. sama lyktin sem tók á móti manni.
Ég kvaddi MH með sorg, en vor, í hjarta.
Þá fórum við í Melabúðina en þar spjallaði ég við Sigurð Kára (ekki Árnason) um hollan mat í röðinni. Við keyptum okkur ömurlegan mat. Ég hef aldrei keypt mér langlokurist áður. Það er vert að mæla ekki með slíkum kaupum. Þetta hljómar kannski ekki allt svo skrýtið, en það má með sanni segja að fáir dagar hafi verið jafn undarlegir. Kórinn fór fram úr sér í skringilegheitum.

|