8.7.12

Á föstudaginn skrifaði ég þessa bloggfærslu og birti:

Það er búið að vera óendanlega gaman að vera til síðustu vikur og raunar frá því sumarið byrjaði. Jafnvel þótt ég hafi ritgerð hangandi yfir mér.
Lífið er gott.

Núna langar mig til að bæta við hana.

Sumarið hefur verið stórkostlegt í alla staði. Kannski er það af því að fyrirfram átti ég ekki von á miklu, þar sem ég vissi að ég væri svolítið lengi að læra og það myndi ekki vera gaman. Það hefur bara verið allt í lagi að skrifa þessa ritgerð, en ég hlakka samt mikið til að losna við hana og geta verið fullkomlega frjáls þegar póstútburði lýkur. Reyndar eru bara þrjár vikur þar til ég flyt út. Flyt til fyrirheitna landsins Þýskalands.

En þetta sumar. Það er búið að vera svo gott af því að það er búið að vera svo afskaplega hlýtt og gott veður, ég er búin að vera berleggja í vinnunni og á djamminu og það er ekkert betra en það. Ég er búin að eyða miklum tíma í að drekka gott kaffi á kaffihúsum Reykjavíkur. Ég er búin að hjóla frekar mikið. Ég er búin að vera í kjól á nánast hverjum degi, ég fór í buxur í fyrsta sinn í dag í margar vikur. Það er búið að vera svo gott af því ég og Dóra erum búnar að vera svo mikið saman að gera allt og ekkert. Þetta sumar er búið að vera svo gott af því ég er að læra að hafa minni áhyggjur af öllu. Svo gott af því ég geri skemmtilega hluti allar helgar. Búin að fara í stórskemmtilega útskriftarveislu hjá Dóru í byrjun júní þar sem var nokkuð fámennt en afskaplega góðmennt og drekka Sumaröl í lítravís. Fór óvænt til Húsavíkur helgina eftir það, fór í flugi til Akureyrar á föstudagskvöldi, húkkaði far til Stórutjarna þar sem ég hitti fallegu hótelstýruna Bergþóru örsnöggt áður en ég var sótt og Kaldbakssnilld tók við. Lífið og listin, heitir pottar og bjartar sumarnætur. Ævintýraleg heimferð þar sem bíllinn bilaði og skáti kom til hjálpar, en ekki hver.
Vikuna eftir Húsavík fór ég á hjólabretti í fyrsta sinn, renndi mér eftir höfninni og leið eins og ég væri töff. Ég var það alveg örugglega ekki. Svo voru útskriftir hjá afar mörgu fólki sem mér er kært helgina eftir það. Ég fór á milli veislna og drakk vín og borðaði góðan mat og hitti allt þetta góða fólk og fagnaði með því. Dansaði og hélt ræður. Já, í fleirtölu. Það má. Fór á planað stefnumót í listigarði Einars Jónssonar við góðar konur og menn þar sem sumir veltu sér upp úr Jónsmessudöginni en aðrir fóru í sleik.
Þegar þjóðin kaus sér ekki nýjan forseta var ég áhyggjulaus og hamingjusöm með bestu vínkonum í heimi á Vínkonugríni 2012. Eftir morgunmat með kynningu á hjálpartækjum ástarlífsins fórum við út að sigla á seglbátum og kanóum. Hoppuðum í sjóinn. Skáluðum. Fórum fyrir hornið þar sem jakkafataklæddir menn með sólgleraugu biðu okkar við bílana sína og keyrðu okkur í Hljómskálagarðinn. Þar nutum við, sóluðum okkur í einhverju besta veðri sem ég man eftir á Íslandi og borðuðum nesti. Erpur mætti og talaði um ástina við okkur. Samdi ljóð handa Vínkonugríni 2012 sem nú er innrammaður farandsgripur okkar vínkvenna. Fórum í leik, húkkuðum far út á Seltjarnarnes í stutta sundferð. Þá biðu okkar skvísur sem skvísuðu okkur upp og máluðu svo gasalega fínt. Borðuðum afar vel grillaða hamborgara á Nesbalanum og köffuðum okkur í gang. Tókum langan, langan leigubíl með miklum vangaveltum um hvert við værum eiginlega að fara. Reiðhöllin í Víðidal var áfangastaðurinn. Helgi Bjöss og reiðmenn vindanna og allskonar hestamenn og konur í lopapeysum og gúmmítúttum, en við allar í okkar fínastafínasta pússi og þannig eins og álfar útúr hól. KB og Bakkus. Rómans.
Pikknikk á Klambratúni. Bjór á fimmtudegi. Óvart einn, tveir, þrír. Bjór og skot. Bjór næsta fimmtudag. Önnur kynni af Laugaveginum en áður.

Nú um helgina hélt ég svo útskriftarveislu. Útskriftarveislu í tilefni af útskrift í október, og ritgerðarskilum sem verða (vonandi) í lok vikunnar. Mikið af góðum gestum. Mikil stemming. Mikill hlátur. Mikil gleði. Mikil drykkja. Það var alveg hreint út sagt frábært! Sjaldan skemmt mér svona vel í eigin partíi. Ég þakka innilega öllum þeim sem komu og fögnuðu með mér. Auðvitað hélt ég ræðu. Ræðu fyrir sjálfa mig í mínu eigin partí. Auðvitað.

Sunnudagsfundir á Laundromat s.l. sunnudaga. Bíóferðir á fallegar myndir.
Og alltaf er einhver í rómans.

Vika í stíf ritgerðarskrif, allskonar hittinga með góðum konum, hlátursköst með skemmtilegum mönnum. Spánarferð með fjölskyldunni í engu nema afslöppun og sól. Vika á Íslandi. Brottför til Þýskalands. Flutt að heiman. Farin. Mikið er ég ótrúlega spennt.
Mikið er lífið búið að leika við mig undanfarið.