Hér er allt að gerast!
Eftir mjög svo rólega viku
byrjaði skólinn í morgun og ég var að enda við að BÓKA MÉR FAR TIL CANNES Í
NÓVEMBER!
Fyrst London með bestu
vinkonunum og m.a.s. Atla bróður og svo Cannes með Röskvusnillunum Bergþóru,
Sigfúsi, Höllu (staðfest) og Brynju Huld! Mig langar til að hraðspóla yfir
næsta mánuð!
Ég er samt líka mjög spennt
að byrja almennilega í skólanum og fá loksins, loksins að takast á við eitthvað annað en
hversdaginn. Nú þarf ég líka að vera megasega dugleg að læra svo að ferðalagið
bitni ekki á náminu.
Ég er í semi-meistaramánuði
og hef ekki borðað nammi/ís/snakk/brauð/pasta í að verða 3 daga núna. Ég held
að slíkt hafi ekki gerst síðan ég hætti á brjósti. Þá er ég aðallega að tala um
að neyta ekki brauðmetis. Brauð er svo einfalt og brauð er svolítið mikið lífið
í Þýskalandi. Mér líður hinsvegar ekki eins og bombunni sem mér líður vanalega
og þarf að byrja að borða hollt og hreyfa mig. Ég ætla ekki að vera einhver
fitubolla þegar ég hitti vinina aftur!
Annað markmið mánaðarins er
að læra eitt nýtt þýskt orð á hverjum degi og nota sem og að lesa eitthvað á
þýsku á hverjum degi. Og skrifa eitthvað í bókina mína góðu á hverjum degi svo
að einn daginn ljúki henni.
Ég er mjög dugleg að elda.
Allavegna duglegust af þeim sem búa með mér á 6. hæð, ég er alltaf ein í
eldhúsinu! Ég er að vinna mjög mikið með kjúkling og grænmeti. Um leið og ég
kaupi mér svo nógu gott box til að geyma t.d. súpu í ætla ég að elda einhven
lúxus og eiga. Ég keypti mér nefnilega þetta líka fína pottasett með lúxus
hnífum, bambus skurðbretti og lélegri pönnu. Þvílík vonbrigði sem panna án
teflons var. En þvílíka hamingju sem hnífurinn færði mér! Nú get ég farið að
verða gourmet-kokkurinn sem ég stefni á að verða í framtíðinni.
Ég skildi allt sem fram fór í tíma í morgun, en prófessorinn talaði líka mjög hægt og skýrt enda um inngangskúrs fyrir skiptinema að ræða og viðfangsefni sem ég hef lært áður. Ég var aðeins minna stressuð fyrir þessu öllu þegar ég sá hvar margir Ítalirnir og Spánverjarnir í hópnum voru staddir tungumálalega séð...hvernig þeir ætla sér að ná þessu hef ég ekki hugmynd um.
Í dag fékk ég svo loksins staðfest hvernig fríinu mínu í febrúar og mars er háttað. Ég er s.s. í algjöru fríi þessa tvo mánuði. Það er svolítið steikt eitthvað, hvað á ég að gera við þessa mánuði? Ég hugsa að ég ferðist eitthvað um Evrópu og hitti allskonar vini í mismunandi löndum (heimboð vel þegin kidz) en það kostar líka einhverja peninga. Allar hugmyndir að snilld til að gera vel þegnar!
Það er mjög skrýtið að byrja svo nýja önn 1. apríl sem endar svo í júlí.
Þetta er blogg
upphrópananna! Ég er líka mjög spennt! Allt að gerast!
|